það vill svo til að ég þekki eina konu sem vinnur i skólanum minum frekar vel svo að ég rölti upp á skrifstofu i sakleysi mínu og svona var samtalið
ég: heyrðu Hulda mín
hún: já
ég: hérna, er ekki blár höfrungur í bílglugganum þínum?
hún: jú..
ég: já hérna, ég var að labba framm hjá honum, og hérna það var keyrt á hann..
hún:haaaaaaaaaaaa? og var bara keyrt í burtu?
ég: uu ég sá þetta ekki gerast en heitir þetta ekki stuðari þarna aftan á?
hún:jú
ég: já það er bara klesst og allt i masski
hún: ég trúi þessu ekki, það sem hefur komið fyrir bílinn minn, og er bara allt brotið? hengur þetta á eða liggur þetta bara þarna?
ég: þetta er nú fast á enþá en þetta er beiglað og svona.
hún: oooo og ég sem er einmitt að fara í viðtal..
ég: Hulda viltu ekki koma yfir þröskuldin?
hún: ha afhverju?
ég: þetta er bara apríl gabb
:') ég gat ekki látið hana hlaupa niður útá bílastæði því að hún var svo upptekin..
en þetta var alveg ótrúlega fyndið:P