Já góðan og blessaðan daginn mínir kæru sorpfellóws

Ég er með eina spurningu handa ykkur en þar sem að ég hata stutta þræði þá ætla ég aðeins að setja meira en bara eina spurningu í þráðinn minn. Mig langar að byrja á því að hrósa notandanum Sora fyrir einstaklega gott framlag á sorpið upp á síðkastið og á hann ekkert nema hrós skilið smápattinn sá.

Annað sem ég vil koma á framfæri er mjög aumkunarverð staðreynd sem lá í loftinu lengi og er mjög augljóst að eigi sér stað það er að Ragnhildur Padfoot og Vignir ChocoboFan eiga í leyndu ástarsambandi. Hér eru heimildir. Fyrir þá sem föttuðu ekki þá er “Hér” linkur

En spurningin góða sem að ég ætlaði að koma á framfæri með visku minni og ætla ég að bjóða vegleg verðlaun sem koma í ljós seinna fyrir rétt svar. Spurningin er:

Hve marga bolla af sykri þarf til að komast til tunglsins?


Eins og áður gat til um þá eru vegleg verðlaun fyrir rétt svar.