Ég var í vinnunni áðan. Ég var ein á vakt og gat þessvegna ekki farið á klósettið. Í sex tíma D:!
Svo þegar ég var loksins búin þá hljóp ég inn á klósett, þar voru tvö klósett. Ég fór inn á annað þeirra og settist niður.
Svo fór ég allt í einu að pæla í því hvort ég væri inná hægra eða vinstra klósettinu. Ég hafði ekki hugmynd um það.
Það ver svona svolítið eins og að geta ekki sofnað og það er svo mikið myrkur að maður sér ekkert, og hefur þar af leiðandi ekki hugmynd um hvernig maður snýr.
Það er mjög athyglisverð tilfinning.

Mér leiðist einstaklega mikið núna. Það er klukkutíma bið eftir pítsunni sem hann Ívar, minn elskulegi yndislegi bróðir þurfti að panta fyrir mig vegna þess að ég þorði ekki að hringja.
Ég vildi einnig, með þessum korki, koma því á framfæri að ég er einstaklega sjálfbjarga manneskja.

OMG. Ég fékk hugmynd. *er lamin í hausinn af dóteríinu á plánetunni þarna í The hitchiker's guide to the galaxy*
Vissuð þið að Ívar bróðir minn á account á huga?