Samloka sem mun vera í huga þínum allt þitt líf.

Ég vaknaði eldhress um daginn og fór í ískápinn og sá þá allt í einu beikon og egg.

Ég hugsaði mig um vel og vandlega því ég var alveg rosa svangur og langaði í eitthvað svakalegt.

Þannig ég tók Beikon og Egg og steikti það vel og vandlega bara eftir smekk. Svo ristaði ég brauð og smurði majónesi á það. Svo tók ég kjúklingaskinku og skellti því á og setti iceberg salat og tómata á kvikindið. Svo skellti ég eldheitu beikoninu og þar á eftir girnilegu eggjunum.

Svo hellti ég ísköldu kóki með klökum og settist niður og naut samloku aldarinnar til hins ítrasta.

Endilega takið ykkur tímann í þetta því þetta fer ekki úr huganum ykkar. Endilega látið mig vita ef þið gerið þetta.

Kv Samlokumaðurinn