1.hvað eruð þið að hugsa um?
Allt of andskoti margt til að geta skirfað það niður hérna, en t.d. er ég að hugsa um hreysið mitt og hvort ég fái betra húsnæði fljótlega eða hvort hálsbólgan sem leiðir út í eyru fari ekki að hætta, hvað mig langar í eitthvað að éta, hmmm sykurpúðar, kók og kryddkaka.. Og margt margt fl.
2.eruð þið artí?
Ég er Regza ekki einhver Artí ^^
3.hvað er bestasti sjónvarspþáttur ever að ykkar mati?
Hélt mikið uppá Charmed og Lögregluhundinn Rex, en Heroes er farinn að ná athyggli minni nýlega svo ég er ekki viss.
4. eruð þið sjúkir,brenglaðir og kaldrifjaðir sorparar eða ljúfir og góðhjartaðir sorparar?
Regza er meira í áttina að sjúkum, brengluðum og kaldrifjuðum sorpara en hinn persónuleikinn er víst voða saklaus nær því að vera ljúfur og góður sorpari, svo það er bæði býst ég við.
5.hvað finnst ykkur um ákvörðun mína að kaupa mér gasgrímu í Army.is(ef hún er enn seld þar)?
Þínir peningar þín áhvörðun ef þú hefur einhver not fyrir hana þá bara go for it!
6. í hverju ertu?
Þú vilt ekki vita það! ..og þó þú spurðir víst svo ég er í einu buxunum sem ég hef fallið fyrir og virkilega langað í en það eru passlega víðar gallabuxur með nokkrum auka vösum og hnúajárn hangandi við beltið, en vitanlega fylgdi það ekki buxunum, annars er ég með svartan klút skreittan með eldi og hauskúpum um hálsinns, í svörtum sokkum, slitinni draslpeysu sem er mest notuð í vinnuna, rauðum adidasbol eining almenn vinnuföt, rauðum brjóstahaldara og svörtum g-streng.
7.við hvað vinnur þú?
Ég vann við að ríða flottum folum, og stöku merum, en sumir voru ekki eins flottir en þú veist að shit happens! En ég hætti þar vegna meiðsla ein merin barði mig of illa, (það vita allir að ég er að tala um hesta er það ekki?) er því á milli starfa núna, á leiðinni í starf sem atvinnugirðingarfanntur samt fljótlega..
8. hvað er skoðun þín á baugsmálinu?
Voða lítil, hef meiri skoðun á Kompásmálinu eins og er ^^
9. If I said you had a beautifull body would you hold it against me?
Nei ég myndi bara vita að það er satt, reyndar bara nýlega sem ég hef fengist til að viðurkenna það ^^
10.er ég ekki skemmtilegur?
Góð spurning, komst allavega með frumlegri spurningar en þessar venjulegu =P
11. hvað er hringitóninn á símanum þínum?
Veit ekki nafnið en eitthvað sem fælir pottþétt ekki folana undan mér..
12. nærð þú öllum prófunum?
Ef ég nenni þeim þá næ ég þeim oftast, en ég er orðin full löt að læra í dag.. Á samt nokkuð auðvelt með það ef ég fókusa á það smá stund…
13. er ég ekki getnaðarlegur?
Eflaust, en ég hef bara ekki séð þig til að meta það ;Þ