híhí ég lennti í því að vera stoppuð af þeim hérna á akureyri þegar ég var að koma úr partýi á laugardeginum ^^, mér fannst þeir algjör snilld og núna er verið að henda þeim úr landi! =O
Mér finnst þetta bara rétt ákvörðun þar sem þeir eru ekki með vinnuleyfi né búsetuleyfi eða hvað sem það kallast, þar af leiðandi mega þeir ekki vera hérna samkv. lögum og er þá alveg rétt af lögreglu að senda þessa menn burt ásamt fleyri svona götulistamönnum. Annars er ég ekkert á móti fólkinu sjálfu, bara því sem það er að gera og það er að betla.
Ég sá einn vera að spila á harmonikku fyrir utan Bónus, ég vorkenndi honum svo, það var svo hvasst. En hann var flottur á harmonikkunni.
Samt gott fyrir þá að fara heim til sín ef þeir lifa bara á því að betla.. nema það sé verra ástandið í Rúmeníu. Og hvað voru þeir líka að spá í að koma til Íslands? Frá Rúmeníu? Spes. Ekki að ég vilji þá ekk hérna, þeir eru kúl sko, en ég er ekki viss um að mér myndi detta í hug að fara til Rúmeníu að betla… en þeir hafa örugglega sínar ástæður.
"híhí ég lennti í því að vera stoppuð af þeim hérna á akureyri þegar ég var að koma úr partýi á laugardeginum ^^, mér fannst þeir algjör snilld og núna er verið að henda þeim úr landi! =O"
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..