Spurning sem hefur brunnið á vörum mannkynsins í aldaraðir, margar forvitnar sálir og árur heimspekinga hafa velt þessari spurningu fyrir sér, en mjög fáir komist að niðurstöðu. Enginn hefur komist nær svarinu, það hefur farið fyrir brjóstið á mörgum einstaklingum að hafa ekki fengið svör. Lítil, viðkvæm, forvitin hjörtu hafa brostið. Hver er þessi spurning spurjið þið kannski. Án frekari málalenginga, þá vippum við fram spurningunni: HVAR ER VALLI!?!
Við teljum að hann hafi haldið sig í djúpum frumskógum Amazon eða skraufþurrum eyðumerkursöndum Arabíu eða jafnvel stríðsvöllum Íraks, en takið eftir HINGAÐ TIL því við höfum öruggar heimildir að hann hafi sést á Ingólfstorgi s.l. miðvikudagskvöld um miðnætti.
Hér með lýsum við því eftir Valla. Hann sást seinast í hvít- og rauðröndóttri peysu, með alpahúfu og bakpoka.
Finnandi vinsamlega beðin um að gefa sig fram við lögregluna í Reykjavík.

kv. sunnagje og óhugarinn Hafdís og smá Davinci:P

C",)