Er búin að fara í 1 og á 1 eftir. Þessi sem ég á eftir að fara í þekki ég manneskjuna EKKERT!;O En æjh ég man þegar ég var að fermast þá þekkti ég ekki helminginn af liðinu sem mætti;'D
Kl 10:15 fór ég út úr húsinu mínu og kom heim áðan eftir að hafa verið í 9 og hálfan tíma í burtu. Fór í fermingarathöfn kl 11 hjá frænku minni, strax eftir því var veisla, svo önnur veisla hjá vinafólki og svo önnur hjá vinafólki. Ég er að drepast…
Var í einni áðan, var næstum sprunginn, enda ææææðislega góður maturinn þar. Þoli ekki hvað ég verð fljótt saddur þegar fullt af góðum mat er á boðstólunum. Var um daginn í kökuveislu og borðaði alveg yfir mig og var hársbreidd frá því að æla í bílnum á leiðinni heim. Ahh, fermingarveislur eru yndislegar ^_^
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..