Jæja hvað haldiði?? er ekki bara aðalmanneskjan fermd! og hver ætlar að vera fyrstur að óska mér til hamingju? það er spurning *-)
jæja s.s. þá var ég fermd í gær kl. hálf2 ásamt 22 (held ég) öðrum krökkum og þar á meðal henni röggu sem var í kjól!! eitt af þeim fáu skiptum sem maður sér hana í kjól. Aaanyways þetta var nú aldeilis athöfnin, með altarisgöngu og alles. segið mér nú var ekki ykkar athöfn frábær? Örugglega, samt ekki jafnfrábær og þessi ;D Jæja svo var haldin veisla heima hjá mér sem hepnaðist ágætlega og núna sit ég uppi með svona 10 ókláraðar kökur :Æ Time to get fat!
Síðan langaði mig að skrifa nokkra punkta um sokkabuxur! Stórmerkilegur hlutur skal ég segja ykkur!
-Sokkabuxur eru til í alskonar litum alveg frá svörtum og upp í appelsínugular!
-Sokkabuxur eru nothæfar bæði fyrir stelpur OG stráka. svo að strákar ekki vera feimnir við að skella ykkur af og til í sokkabuxur og kannski pils til að lífga upp á lúkkið ;D
-Það verður að fara varlega samt sem áður þegar verið er að klæða sig í þær svo að það komi ekki lykkjufall :S það er ekki það besta sem gæti komið fyrir skal ég segja ykkur! Hugsið ykkur að þið væru í boði og þyrftuð nú á klóið. Þegar klósetferðinni er lokið þá sjáiði allt í einu að það hafði komið lykkjufall á sokkabuxurnar! og þið gerið ykkur að athlægi! það væri hræðilegt! rsum..
-Svo verðiði að passa að þið finnið rétta litinn þegar þið veljið ykkur sokkabuxur :D
Jæja ég held að þetta sé komið gott :D
Já og gleymið því ekki að sokkabuxur geta haldi á ykkur hita! mjööööööööög mikilvægt að vita.
Ég vona að þetta hafi verið fróðlegt og ég vil bara segja njótið vel. Ég meina ekki viljiði falla á prófi bara vegna þess að þið vitið ekki mikið um sokkabuxur ;D