Ég fékk líka köku í gær í vinnunni því einhver var að hætta. Þetta var (og er) ótrúlega góð kaka, og svakalega flott, ég fékk líka af henni í dag (stór). Kökur eru yndi ^_^
Annars var ég að vinna í gær 9-6, svo borða horfa á sjónvarpið lesa bók fyrir íslensku og sofa. Sama dagskrá áætluð fyrir kvöldið í kvöld nema ég kom klukkutíma seinna heim. Vinnuhelgar gera mig þreyttan ={
Ég er ekki mjög saddur, hef bara enga lyst. Skrýtið miðað við það að eina sem ég er búinn að borða í dag er hafragrautur, croissant, Kappi, hálfur Kristall, svolítið of margar kökusneiðar, mikið vatn og slátrið sem var í kvöldmatinn. Gott að vera ekki svangur, maður sparar svakalega á því að borða næstum ekkert!