jæja gott fólk … ég er með bílpróf …. en ekki lengi…. ég er að fara að missa prófið
12.2.2007
72 teknir fyrir hraðakstur
Sjötíu og tveir ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Mikill meirihluti þeirra, eða 55, ók á yfir 100 km hraða og sumir langt umfram það. Mestmegnis voru þetta ungir karlmenn en elsti ökufanturinn reyndist vera liðlega hálfáttræður.
Í hópnum voru líka ökumenn sem eru nýkomnir með ökuréttindi. Sautján ára stúlka, sem fékk bílpróf fyrir tíu dögum, var tekin á 111 km hraða á Vesturlandsvegi þar sem leyfður hámarkshraði er 80. Jafnaldri hennar var stöðvaður á Kringlumýrarbraut aðfaranótt sunnudags en bíll hans mældist á 138 km hraða. Þar er leyfður hámarkshraði einnig 80. Annar 17 ára piltur var tekinn á Reykjanesbraut við Straumsvík í gærmorgun. Hann ók á 118 km hraða. Báðir piltarnir fengu ökuréttindi fyrir fáeinum vikum.
Fjölmörg önnur dæmi má nefna úr umferðinni um helgina en grófasta umferðarlagabrotið var framið á Hafnarfjarðarvegi síðdegis í gær. Þar mældist bíll 24 ára karlmanns á 160 km hraða en sami ökumaður var tekinn fyrir ofsaakstur í öðru umdæmi í síðustu viku.
takk :D
missi prófið í einn mánuð og 75 kall í sekt :D
Bætt við 13. febrúar 2007 - 14:11
p.s.
tekið af lögregluvefnum www.logregla.is