Hjálpaði bróður mínum að bera eitthvað drasl út, svo stökk kötturinn fram á stigagang. Þegar ég kom aftur var hann horfinn, ég leitaði útum allt en fann hann hvergi…
Svo ætlaði ég að taka final rúnt í stigaganginum til að leita að kettinum og sá þá opna hurð að einni íbúðinni. Gægist ekki helv kötturinn út og þegar ég ætla að reyna að grípa hann þá hleypur hann aftur inn :/ Ég hringi dyrabjöllunni, banka en enginn svarar og augljóslega enginn heima, svo ég þurfti að læðast inn og ná í köttinn >_< Mér leið eins og ræningja, ég veit ekki hvað ég hefði gert ef íbúarnir hefðu komið…