Aha! I like your evilness so…Þú ert mjög velkomin!
En já FNSSG stendur fyrir Félag Nörda Sem Stunda Gufuböð! Upphaflega var þetta eina starfsemi félagsins sem hittist árlega í finnsku gufubaði(Eða sauna eins og þeir kalla það víst) og ræddu málin! En síðan þá hefur félagið þróast og breitt úr sér og nær nú til dæmis til Eurovision-félagsins(Stjórnandi - Auntie Böbfríður), Ég-elska-Harry-Potter-félagsins, Fólk-sem-les-Heimsmetabók-Guiness-á-hverjum-degi-félagsins og Fólk-sem-horfir-á-Desperate-Housewifes-í-laumi-klúbbsins ásamt því að hafa virkar deildir á Spáni(Bæði fyrir Spánverja og Kínverska Spánverja) í Kína, Marokkó og í Danaveldi(Voðalega vafasöm deild þar)! Nú svo erum við með stjórn sem í augnablikinu samanstendur af þremur manneskjum - Mér, Minister of commercial affairs, Tryggva, Minister of Spanish and F-word affairs og Guðrúnu hinni góðu(Það er önnur sem gengur undir nafninu Guðrún hin illa), Minister of non-blondie affairs! Ég er samt ekki alveg með nöfnin á ‘ráðuneytunum’ á hreinu en þær upplýsingar má nálgast hjá Tryggva(eða Try-Guy eins og hann kallaði sig á sínum yngri árum)
Eitt orð er á bannlista hjá félaginu en það er hið hræðilega nafn á litlum eyjum á milli Danaveldis og Íslands(Any ideas?) og eru þær undir stjórn Dana! Upp á síðkastið höfum við hins vegar verið að taka upp nýja stefnu og höfum öðru hvoru ákveðið að taka þetta HP-style og segja orðið! Færeyjar! *Hrollur*
Í bili skulum við kalla þær The Islands of F eða The Islands we must not name eða einfaldlega the F-word!
Jæja, nú ættir þú að vera nokkuð meira inní starfsemi félagsins! En vúbbí, ég er að gleyma mikilvægum parti!
Heilaþvætti! Við erum góð í honum! Og stundum hann í gríð og erg til að fá vilja okkar framgengt! ;) Gott Gott!
Ps. Við stefnum á heimsyfirráð - og útrýmingu 50 cent!