Jæja strumparnir mínir, nú verður sagt nákvæmlega næstum allt um súkkulaðið í súkkulaðidagatalinu mínu :D
Það er mynd af Sveinka að gefa krökkum gjafir á því *jei*
1.Gluggi/1 biti:Skýrsla
Staðsetning:Efst uppi í vinstra horninu með mynd af hluta af lest í hillu
Mynd:Lest
Litur:Kúkabrúnn
Bragð:Frekar gott með keim af lofti
Dauði: Ég át hann með mestu fullkomnun, einn bita í einu á stærð við 1 rúmmillimetra og naut bragðsins til fulls.
Dánartími:Kringum 7:40 1.Desember'06
2.Gluggi/2 biti:Skýrsla
Staðsetning:Fyrir neðan efst uppi í hægra horninu með mynd af húsum og fót af dúkku
Mynd:Sjörnu/rós/kaka/drasl
Litur:Ekki bleikur held ég
Bragð:Fann það ekki þar sem ég gleypti hann eins hratt og ég gat í heilu lagi og kafnaði næstum
Dauði:Sjá skýrslu um Bragð
Dánartími: 18:25 3.Desember'06
3.Gluggi/2 biti:Skýrsla
Staðsetning:Neðst vinstra megin með mynd af hluta af stelpu
Mynd:Pakki
Litur:Brúnn
Bragð:Frekar mikið pappabragð þar sem illa gekk að opna gluggann
Dauði:Sýndi mikinn hetjuskap með því að nota pappír sem skjöld og gefa morðingja ógeðsbragð
Dánartími: 18:26 3.Desember'06
Framhald :O Dundundunduuuun…………..