Martraðir
Hver er ykkar versta martröð?^^
þegar ég var 11 ára dreymdi mig að ég væri að skoða fangelsi með bekknum mínum!Mér fannst þetta nokkuð spooky þarna :)
en fangarnir voru allsberir inní glerbúrum og voru grindhoraðir og átu hrátt kjöt og voru endalaust að stynja vonleysislega!!!
mér fannst þetta vera ógeðslegt og ætlaði að hlaupa út en fór óvart inní einhver sal og þar var eitthvað ský að syngja, síðan sprakk það og grýlukerti stungust í gegnum mig en þá vaknaði ég!!!
ég
Ég stend, og það er ljós rétt í kringum mig en myrkur allstaðar annarstaðar. Það skríða 2-3 kakkalakkar að mér, og ég stíg á þá. Þá skríða 7 kakkalakkar að mér, en ég næ að trampa þá alla í spað. Þá koma yfir 20 kakkalakkar að mér. Ég næ að drepa helling af þeim en nokkrir komast að mér og byrja að skríða upp eftir mér. Þegar þeir fyrstu sem komast að mér ná að skríða á mig, koma þúsundir, að mér, skríða upp eftir mér. þegar þeir eru að byrja að hylja mig byrja ég að öskra, og þeir byrja að skríða ofan í munninn á mér!
Og þegar ég vakna þá líður mér eins og það sé eitthvað að skríða allstaðar á mér!