Það hefur borið á því að Sorpurum leiðist… Humm…
Og þar sem ég er afskaplega góðhjörtuð manneskja ákvað ég að skella inn nokkrum bráðfyndnum bröndurum til að skemmta ykkur. Værsogoda!:

Kona var gangandi meðfram strönd þegar hann gekk framhjá lampa í fjöruborðinu.
Tekur hún lampann upp og strýkur utanaf honum þangið, allt í einu stígur upp mikil reikur úr lampanum og áður en konan veit af stendur andi fyrir framan han !
“Ég þakka fyrir frelsunina og í staðinn færði eina ósk”
“eina ósk? afhverju ekki þrjár?!” þráttar konan
“Sökum miklar verðbólgu í andaheiminum sjáum við okkur bara fært um að veita hverjum þeim sem finnur lamba einungis eina ósk” svar andinn þreyttur
Konan friðast við þetta og hugsar sig um.
Svo dregur hún kort upp úr vasanum og segir við andann
“þetta er kort af iðnríkjunum, þriðjaheims ríkjunum og öllum fátæku ríkjunum hér á jörðinni, ég óska þess að þar muni ríkja friður og allir munu fá nóg að bíta og brenna um alla eilífð”

Andanum bregður nú við en segist því miður ekki geta veitt þessa ósk því hún sé svo stór og verðbólgan í andaheiminum veitir þeim aðeins vissa krafta og þeir sem hann hefur eru alls ekki nógu miklir í þessa stóru ósk og biður konuna um að velja sér einhverja aðra
Hún dæsir en segir svo “ok, ég óska mér hins fullkomra karlmanns, manns sem mun elska mig og virða, mann sem vill frekar eyða tíma með mér í búðum heldur en að horfa á fótboltann og sé sammála mér um allar breytingar á heimilinu og mun alltaf minna mig á það hvað ég sé falleg og hversu mikið hann elskar mig”

Andinn þegir um stund, svoldið fýldur á svip en segir svo eftir langa þögn
“sýndu mér aftur þetta fjandans kort!”

***

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.
eitthvað fannst honum þetta dulafullt og gekk upp að konunni
'góðann daginn væna mín' sagði hann ‘hefur þú tekið eftir því að það eru 5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?’
konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna
'Æ þakka þér fyrir væni minn' stundi í konunni ‘Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp’
En þegar hún ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana ‘Engann asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann rusapoka af fimm þúsund köllum? varstu að ræna banka?’
Gamla konan brosti ‘nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja ’5000 kr. eða ég klippi hann af'
'jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd' sagði lögregluþjóninn hugsi ‘..en hvað ertu með í hinum pokanum?’

'Það eru ekki allir sem borga…'

***

Skoti nokkur sat og las í bók. Öðru hvoru slökkti hann ljósið í stutta stund og kveikti það svo aftur. Kunningi hanns undraðist þetta og spurði hann hvað honum gengi til.- Ég er að spara rafmagnið. Það er engin ástæða til að hafa kveikt á ljósinu þegar ég fletti síðunum.
***

Hafnfirskur prófessorskrifaði eftirfarandi í minnisbókina sína:-ég tók könguló í lófann og sagði: ,,Hoðppaðu!“ og hún hoppaði. Svo sleit ég eina löppina af og sagði aftur:,,hoppaðu!” en þá sat hún kjurr. Ályktun: Þegar maður slítur löpp af könguló verður hún heyrnalaus!

***

Sherlock Holmes og Dr. Watson fóru í tjaldútilegu.Þegar þeir voru lagstyr í svefnpokana sagði Holmes skyndilega:-Watson, segðu mér hvað þú sérð þegar þú horfir upp í himininn? Watson:-Ég sé miljónir og aftur miljónir stjarna. Holmes:-Og hvað segir það þér? Watson:-Stjarnfræðilega segir það mér að það séu til miljónir af vetrabrautum og hugsanlega triljónir af plánetum.Guðfræðilega segir það mér að guð sé mikill og við séum smáir lítilfjörlegir. Veðurfræðlega segir það mér að það verði gott veður á morgun. En hvað segir það þér? Einhver hefur stolið tjaldinu okkar.
***

Jón verkfræðingur deyr og fer auðvitað upp til himna eins og allir verkfræðingar. Þegar þangað kemur leitar Pétur í nafnalistanum og segir svo: “Því miður Jón minn, þú ert ekki ekki á listanum. Þú verður að fara niður”. –“En en, ég er verkfræðingur…” “Já sorrí, en þú ert ekki á listanum !” Þannig að Jón er sendur niður til helvítis. Mánuði síðar er Guð að fara yfir nafnalistana og sér að þau mistök hafa átt sér stað að Jón verkfræðingur hafi óvart verið sendur til helvítis. Hann bjallar í Satan og biður hann um að skila nú Jóni. Satan segir strax, “Ekki séns, þú færð Jón sko ekki aftur, þín mistök.” Guð er ekki sáttur og segir, “Láttu ekki svona, Jón er verkfræðingur, hann á heima á himnum með hinum og þú veist það”. Þá var Satan mikið niðri fyrir og sagði “Sko, áður en Jón kom var ógeðslega heitt hérna, það var hraunstraumur hér um allt og brennisteinsfnykur og viðbjóður. Jón breytti þessu öllu. Núna erum við komin með loftræstingu, brýr, vegakerfi, flóðvarnagarða og ég veit ekki hvað og hvað, allt hannað af honum. Þetta er orðið helvíti næs hérna hjá okkur. Það er ekki séns að þú fáir hann”. “Sko Satan, þú lætur mig fá hann aftur, eða ég fer í mál við þig !” “-Já er það, og hvar þykist þú ætla að fá lögfræðinga…”

***

Maggi var harðduglegur maður og vann gríðarlega mikið en í frístundum sínum stundaði hann blak, og innanhússfótbolta. Eina góða helgi ákvað Fríða, eiginkona hans að gera honum glaðan dag og fara með hann út á lífið. Þau klæða sig í sitt fínasta púss og fara á einn af þessum stöðum þar sem boðið er upp á svokallaðan “listdans” í kringum súlur. Dyravörðurinn á skemmtistaðnum sér þau koma og kallar: - Góða kvöldið, Maggi. Hvernig hefuru það í kvöld? Fríða verður mjög hissa og spyr Magga hvort hann hafi komið hingað áður. -Nei, nei, segir maggi. - Hann er einn af þeim sem ég spila blak við. Þau fá sér sæti og þjónustustúlkan kemur til þeirra, sér Magga og segir: - Gaman að sjá þig Maggi. - Viltu gin og tónik eins og venjulega? Augu Fríðu stækka. - Þú hlýtur að koma hingað oft! -Nei nei, segir Maggi. - Strákarnir kíkja hingað inn stundum eftir blakið. Þá kemur nektardansmær upp að borðinu þeirra íklædd litlu meira en brosinu. Hún faðmar Magga innilega að sér og spyr: - Maggi, elskan. Ætlaru að fá einkadans eins og venjulega? Fríða verður öskureið safnar saman dótinu sínu og stefnir út af skemmtistaðnum. Maggi eltir hana og sér hana fara inn í taxa, svo hann stekkur inn í bílin á eftir henni. Fríða horfir á hann hatursfullu augnaráði og lætur hann hafa það óþvegið. Þá hallar leigubílstjórinn sér að Magga og segir: - Þú hefur náð í eina erfiða í kvöld, Maggi minn.
***

Lögfræðingur einn hafði keypt sér glænýjan Mercedes-Benz S500 og gat ekki beðið eftir að sýna félögum sínum gripinn. Allt í einu þegar hann opnar hurðina á bílnum fyrir utan skrifstofuna sína kemur Rúsneskur torfærutrukkur á fullri ferð og rífur hurðina af bílnum. Lögfræðingurinn stekkur út og öskrar NEEEIIIII! Hann vissi að sama hversu góður viðgerðarmaður reyndi að gera við bílinn þá myndi hann aldrei verða jafn góður aftur. Loks kom löggan og lögfæðingurinn hljóp að henni og öskraði: HELVÍTIS FÍFLIÐ Á TRUKKNUM KEYRÐI HURÐINA AF BENZANUM MÍNUM!!! “Þú ert lögfræðingur er það ekki” sagði löggan. “Jú, hvernig vissir þú það” svaraði lögfræðingurinn. “Ja, það er nú bara það að þið lögfræðingar eruð svo uppteknir af veraldlegum gæðum, að þið hugsið bara um peninga og eignir, ég þori að veðjaað þú tókst ekki einu sinni eftir því að það vantar á þig vinstri hendina”. Lögfræðingurinn leit á hliðina á sér og öskraði: “NEEEEIII! ROLEX ÚRID MITT!!!”

***

Einu sinni voru þrír fótboltaáhugamenn að þvælast um Sádi Arabíu. Einn hélt með Leeds, annar með Man. Utd. en sá þriðji með Liverpool. Auðvitað voru þeir allir fullir, en það er stranglega bannað í Saudi Arabíu, þannig að þeir voru allir handteknir. Svo voru þeir leiddir fyrir sheikinn. Sem sagði." Vegna drykkjuskapar á almannafæri verðið þið allir hýddir 50 svipuhöggum. En vegna þess að í dag er þjóðhátíðardagur hjá okkur ætla ég að veita ykkur tvær óskir hvorum. Kom svo að því að hýða átti Leedsarann svo hann bað um að fá kodda bundinn á bakið á sér og bestu fáanlega læknishjálp ef með þyrfti. kom svo að því að hann var hýddur, en koddinn dugði ekki nema í 15 svipuhögg þannig að hann varð alblóðugur og næstum dauður eftir þessa meðferð. En fékk læknishjálp. Síðan kom að! Unided manninum….Hann sagði ég vil fá tvo kodda bundna á bakið á mér, og ef með þarf þá bestu læknisaðstoð sem um getur. Svo kom að hýðingunni. koddarnir dugðu í 30 svipuhögg. Blóðugur en á lífi fékk United maðurinn góða aðhlynningu og var nokkuð kátur. Loksins kom að Liverpoolmanninum. Hann sgði hátt og snjallt…BÆTIÐI VIÐ 200 svipuhöggum og bindið helvítis United manninn á bakið á mér!
***

Einu sinni var maður sem hét Guðmundur. Hann var þeim galla búinn að þegar vinnufélagarnir töluðu um einhvern þá þóttist hann þekkja hann. Einn daginn í vinnunni í kaffihléinu voru menn að tala um Björk Guðmundsdóttur. Þá heyrðist í Guðmundi: “Já, Björk, hún er nú góð stelpa” Vinnufélagi: “Guðmundur, þekkir þú Björk?” Guðmundur: “Já hún er mjög fín” Vinnufélagi: “Djöfuls… kjaftæði Guðmundur. Við erum komnir með nóg af þessu, þú þykist þekkja alla. Í guðanna bænum hættu þessu kjaftæði og haltu þessu fyrir sjálfan þig”. Nokkrum dögum síðar í vinnunni. Vinnufélagi: “Strákar, Svíakonungur er víst að koma til landsins á morgun”. Guðmundur: “Svíakonungur, það er nú góður karl”. Vinnufélagi: “Þekkir þú líka Svíakonung?” Guðmundur: “Já,já ég þekki hann mjög vel” Eins og áður sagði voru vinnufélagarnir löngu búnir að fá sig fullsadda af þessu kjaftaæði í Guðmundi og létu þetta sem vind um eyru þjóta. Daginn eftir var Guðmundur ekki í vinnunni og þótti mönnum það mjög einkennilegt. Sama kvöld í fréttum sást Guðmundur ásamt ríkisstjórninni á REK flugvelli að taka á móti Svíakonungi, og heilsuðust Guðmundur og Svíakonungur með virktum. Vinnufélagarnir voru mjög hissa og sumir meira að segja trúðu núna þessum sögum Guðmundar. Tveimur dögum síðar tilkynnti yfirmaður vinnunnar að hann, ásamt konu sinni, væri að fara til Ítalíu og ætlaði að sjá páfann í Vatíkaninu. Þá heyrðist í Guðmundi: “Páfinn, já, það er nú góður maður”. Yfirmaður: “Guðmundur, þekkir þú páfann líka?” Guðmundur: “Já, já, ansi fínn karl en svolítið gamall”. Yfirmaður: “Guðmundur nú geri ég við þig samning. Þú kemur með okkur til Ítalíu og kynnir mig fyrir páfanum. Ef þú þekkir hann skal ég splæsa á þig ferðinni, ef hann þekkir þig ekki splæsir þú”. Guðmundur: “Ok”. Á Ítalíu: Guðmundur og yfirmaðurinn voru komnir í Vatíkanið í messu og var kirkjan fullsetin. Þegar messan var búin gekk Guðmundur í gegnum mannþröngina og upp að púltinu þar sem páfinn var. Þeir heilsuðust með virktum og töluðu í smá stund saman. Síðan er Guðmundi litið yfir mannþröngina en sér yfirmanninn ekki í fyrstu, loksins kemur hann auga á hann þar sem hann liggur á gólfinu með óráði og fólk stumrandi yfir honum. Guðmundur hleypur strax til yfirmanns síns og kemur að honum þegar hann er að vakna aftur til lífsins. Guðmundur: “Hvað gerðist? Varstu svona hissa á þvi að ég þekkti páfann?” Yfirmaður: “Nei, nei - þegar þú varst að tala við páfann bankaði Robert DeNiro á öxlina á mér og spurði mig: ”Who is that guy standing beside Guðmundur?"


PÚRUMM PÚMM TISS!