Fór á þetta blessaða grímuball í gær, ég var Michael Jackson :H Keypti grímu með áfastri hárkollu og fór í frakka og eitthvað…fólk fattaði ekkert hver ég var :'D
En já, þetta ball var ágætt, en draugahúsið sökkaði…ekkert scary, í fyrra var það snilld en núna var ég hálfflissandi allan tímann :)
Sá sem fékk verðlaun fyrir frumlegasta búninginn var strákur úr mínum bekk, hann var Smarter Child =D Lang flottasti búningurinn, hann tók huge kassa og málaði hann gráann, skrifaði svo með stórum stöfum SMARTER CHILD, svo var hann með gráann pappahaus. Fætur úr álpappír og skikkju úr ruslapoka sem stóð á SC…svo stóð Fuck You eða eitthvað undir skikkjunni :'D

En annars lítið að segja, vetrarfrí að byrja í næstu viku hjá mér :O

PS: Kannski ég sendi inn mynd af mér með grímuna?