ókey shit ég lennti í einu svolitlu creepy áðan… þar sem ég á heima er alveg núna í mómentinu stormur það er girðing búin að brotna hjá okkur og fjúka niður og garðstóll allt í einu hérna hjá húsinu. ég bý nefninlega á svona hesta-farm (já ég veit kalliði mig sveitalubba, i don't care, búin að heyra nóg af því og er hætt að taka því nærri mér)

Já ókey, ég var fengin til þess að gefa einum hesti þar sem foreldrar mínir eru ekki heima, þau þurftu að fara hinum megin á landið í jarðaför, þannig að ég var fengin til þess að sjá um þennan eina hest… já, ég fór svona um hálf sjö leitið til þess að gefa honum að éta, það virtist ekkert svo dimmt, bjóst alveg við því að ég myndi sjá þarna inni en nei, ég var eins og blind manneskja, fann loksins rofann til þess að kveikja ljósið og hjá rofanum var þessi viðbjóðslegi köngulóa vefur! :S

Ég var bara já ókey, og inn í þessu “herbergi” (veit ekki alveg hvað ég á að kalla þetta) var heyið sem ég átti að gefa honum, en áður en ég kveikti ljósið þá sá ég bara svona litla birtu hjá stóru hurðinni sem er þarna og á þakinu, og það sem gerði þetta svona creepy var að þetta var alveg á fullu! þakið hristist og hurðin var alltaf að skellast aftur og aftur! en já svo fann ég ekki heldur rofan að ljósinu þar sem hesturinn var geymdur! og það eina sem ég hugsaði var: ,,ó fuck!" sá ekki neitt! en já loksins þegar ég var búin að gefa honum ætlaði ég út, mér fannst eins og þetta væri partur úr bíómynd þar sem var verið að fjalla um mikið óveður, þetta var svona hálfgert désjá vú (or something like that, man ekki hvernig er skrifað)og ég gat ekki lokað hurðinni! ég sver það ef ég hefði hoppað upp í loftið, ég hefði fokið í burtu! þetta var rugl!

já langaði bara að deila þessu með ykkur ^^

til þess að gera þetta ekki bara að einhverjum pointless korki… hvað eru þið að borða núna?