Ég ætla að búa til einhverjar random spurningar um hvað sem mér datt í hug… Allir ættu að geta svarað =D
Well, ekki mikið meira að segja…so here we go!
1. Í hvernig fötum ertu? Ég er í svörtum Nike buxum, síðum svörtum Vila-bol og svörtum Dogma bol með Felix da cat framan á, utan yfir. Svo er ég með appelsínugult belti (ég styð Fylki ^^), er í svartri og hvítri Henson peysu, svo er ég í gráum sokkum og bara bh og nærur :D
2. Hvað heitir iPodinn þinn? Ef þú átt ekki iPod, hvað myndi hann heita? Minn heitir í augnablikinu Bling…það var af því að ég keypti fullt af bleikum perlum til að líma á og setti fullt aftan á hann :D Svo varð ég leið á þeim og tók þær af, nenni samt ekki að skipta um nafn.
3. Á hversu mörgum tungumálum kanntu að telja upp að 20? Fjórum, þýsku, dönsku, ensku og íslensku :P
4. Safnarðu einhverju? Nei, en ég safnaði servíettum þegar ég var lítil. Svo vantaði klósettpappír einn daginn og pabbi og bróðir minn skeindu sér á nokkrum…henti restinni eftir það :'D Svo var ég líka að safna fjöðrum, ég og pabbi fórum í svo margar veiðiferðir á sínum tíma og tókum alltaf fjaðrir sem við fundum með okkur heim. Var líka að safna Andrés Önd syrpum, var komin með c.a. 50 þegar ég hætti.
Núna er ég að safna DVD :D
5. Hvaða bók ertu að lesa í augnablikinu? Ég er ekki að lesa neina bók í augnablikinu, var þó að klára að lesa ævisögu frænda míns Ladda þar sem ég er að gera ritgerð úr henni. Svo var ég líka að klára Korku Sögu, vorum að byrja á henni í skólanum fyrir nokkrum dögum.
6. Hvaða fag finnst þér leiðinlegast í skólanum? Samfélagsfræði, ekki af því að efnið er ömurlegt…heldur útaf kennaranum, ömurlegur gaur.
7. Hvaða kvikmynd sástu síðast? Var að byrja að horfa á Ferris Bueller's Day Off í Val-enskutíma í dag. Erum ekki komin mjög langt en hún virðist fín :) Svo var ég líka að horfa á Stick It í enskutíma, ömurleg að mínu mati :/
8. Er eitthvað sem þú ættir að vera að gera núna? Já, að klára áætlun í stærðfræði…á eftir að klára fimm eða sex bls. fyrir morgundaginn :(
9. Hvað var í kvöldmatinn hjá þér í gær? Við pöntuðum pizzu hjá Dominos…ein 50/50 pizza, hálf Margarita (my choice :D) og hálf Jalapeno og chili, og önnur pepp og svepp. Ætluðum að panta hjá Pizza Rizzo sem eru æðislegar pizzur en nískupúkinn systir mín tímdi því ekki :/ Helvíti dýrt.
10. Hver er leiðinlegasti eða mest pirrandi íslenski celebbinn að þínu mati? Án vafa Hemmi Gunn, alveg hrikalega pirrandi…hláturinn er svo….ARG! Og tennurnar á honum eru svo gervilegar, eins og að hann sé með blað uppí sér…
Jæja….knock yourselfs out ;)