Sorry en við hverju býstu?! Mömmu þinni ber skylda að fylgjast með þér og hugsa um velferð þína! Veit að þetta leit illa út þegar perrinn byrjaði að “spjalla” en nákvæmlega þetta hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarið ár.
Man eftir því þegar Kompás voru að veiða perra á netinu og feisa þá þegar þeir voru mættir á áætlaða staði. Konan sem var í lykilhlutverki þóttist vera 13 eða 14 ára gömul stelpa. Hún skráði sig á einkamál.is og hún fékk helling af svörum. Kallarnir ödduðu hana inn á msn og perruðust í henni og vildu fá hana til að hitta sig. Hún gaf til kynna að hún væri “þetta” ung en kallarnir sögðust ætla að passa sig og hún ætti að gera það líka. Hún samþykkti stað og tíma og þegar kallarnir voru mættir og biðu eftir stelpunni á ákeðnum stöðum, hlupu þá ekki fréttamaður og myndatökumaður til þeirra og spurðu þá hvort að þeir ætluðu að fara hitta unga unglingsstelpu. Kallarnir brugðust skjótt við og forðuðu sér og neituðu öllu. Auðvitað var blörrað fyrir andlitin á þeim svo að engin viti hverjir þetta voru.
Ég skil mömmu þína bara mjög vel! Ég myndi ekki vilja að barnið mitt væri með eitthvað ógeð á msn hjá sér og væri á msn í tíma og ótíma. Það er svo margt ógeðslegt til í þjóðfélaginu. Mamma þín er mjög ábyrgur og góður foreldri! Vildi óska þess að allir foreldrar væru svona varkárir!
Þú mátt alveg hata mig fyrir þetta svar en ég veit að það eru margir sammála mér í þessu tilfelli fyrir utan þig!
Kv. Libero Grýla