3.skólasund er hryllilegt
Ahh, ÆÐISLEGT að vera laus úr því helvíti, menntaskóli rokkar ^^
En jæja, fyrst það er verið að kvarta hérna, langar mig að hleypa einhverju út…
1. Ég er með kvef og smá hálsbólgu, og þetta er svakalega pirrandi. Þoli ekki nefið á mér núna >_<
2. Ég fer í skólann þrátt fyrir þetta, og er ekkert að batna, ég þoli ekki hvernig veturinn fer í mig.
3. Ég þoli ekki þegar ég fer að hlæja upp úr þurru, t.d. í skólanum eða eitthvað, er bara að labba og allt í einu er ég með þennan :') svip, og það er svo vandræðalegt. Ég hugsa of mikið fyndið….
4. Ég hata hvað maturinn í hádeginu kostar mig, ég er að verða gjaldþrota! Ég legg til að Tinna Brighton fari núna til yfirmanna sinna í Hagkaup og biðji um sérstakan Atla afslátt fyrir mig í Hagkaup, 500 kall á hverjum degi í mat er ekkert skemmtilegt fyrir níska (og svanga) mig.
5. Ég er búinn að hugsa upp fullt af meira svona nöldur dóti undanfarna daga, en man það ekki >_< Kannski fyrir bestu…
En ojæja, engin ástæða til að vera í fúlu skapi núna, Little Britain að byrja =}