Ég þarf ekki að sanna mig fyrir einum eða neinum :)
Ég hef ekki tekið eftir því að ég hafi verið með leiðindi neins staðar. Kannski smá kímniblandið bögg en alls engin leiðindi.
Auk þess tel ég afar erfitt að reyna að telja þér trú um að ég sé vitiborinn. Ef ég færi að kveða upp allt Hávamál, þyldi upp 1000 aukastafi af pí eða álíka myndi það frekar sanna einhverfu heldur en vit.
Það er hins vegar eitt sameiginlegt með ykkur sem segið að ég sé með leiðindi. Þið ásakið mann um að vera óvitiborinn, óþroskaðan, stuld á kennitölu og fleira án þess að svara bara málefnalega til baka. Ég hins vegar gagnrýni aldrei fólk fyrir skort á þroska eða viti, hvað þá ef það er á netinu og ég hef ekki HUGMYND um hvern ég gæti verið að tala við.
P.s. ef ykkur líkaði svona vel við gamla sorpið sendið þá sjálfir inn hluti í anda þess. Ef að lífið í því sorpi er dautt þá skuluði bara halda áfram og sætta ykkur við það. Ekki gagnrína okkur hin og vera með væl og ásaka okkur um leiðindi fyrir það að rækta okkar eigin kímni eða sorp.
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig