ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja…
fyrir það fyrsta.. þetta er þriggja ára gamalt. Svo ertu að svara mér, ég skrifaði ekkert annað en “haha” vegna þess að manneskjan sem ég svaraði sagði “djöfladýrkendur”. Þarf ég virkilega að útskýra það fyrir þér að ég hló að þessu svari vegna þess að þetta var augljóslega grín. Grínið fólst í steríótýpunni.
Ég skil ekki hvað kristnir Zealots hafi eitthvað með þetta að gera. Og fyrst við erum komin/komnir út í þá sálma, þá er ég ekki kristinn, og ekki goth, en ég þekkti goth, sem var, að sjálfsögðu venjuleg manneskja sem hvorki drakk né reykti, og hefur aldrei gert.
Ég skil ekki alveg tilganginn með þessu svari þínu, þú ert bara að benda á það allra augljósasta sem hver og ein einasta manneskja ætti að vita, en þykist svo vera fróðari en aðrir um þessi mál.
Og ég geri ráð fyrir því að þessi þráður hafi verið grin til að byrja með, þess vegna komu engin almennileg svör.