Oh, ég er svo mikill lúði.

áðan var ég að labba með hundinn minn niðrí búð. Og allt hefur gengið voða vel. En þá ákveð ég að stytta mér leið og labba niður grasbrekku. Ef þið hafið ekkert litið út um gluggan í dag þá hefur rignt soldið. Sem þýðir að grasið er frekar blautt. Og líka svo þið vitið er hundurinn minn 30 kíló og já frekar sterkur. Við leggjum af stað niður grasbrekkuna. Og hundurinn ákveður að nú sé góður tími til að hlaupa. Og ég renn á rassinn. Og renn á eftir hundinum hálfa brekkuna:C
Og varð rennblaut.

Anyways, ég er í fríi í dag, morgun og hinn og svo alla næstu viku!!!

Jey=)