Jæja, ég er ný hérna á Sorpinu. Ég er með aulahúmor dauðanns og ætla að leggja fyrir ykkur lítið próf.
Ef ykkur finnst þetta fyndið, gott hjá ykkur. Ef ekki…
—————————-
Einu sinni sátu tvær beljur uppí tré og voru að prjóna marmelaði. Alltíeinu datt strákur niður af himnum og þá sagði hinn hundurinn - Þetta er alltí lagi, pabbi hans á sjoppu!
***
Einu sinni sátu tvær kindur uppí tré. Alltíeinu flaug hestur framhjá. Þá sagði önnr kindin - Meeee… Þá sagði hin - Ohh, ég ætlaði að fara að segja þetta!
***
Einn góðann veðurdag, fauk húsið mitt…
**
Einu sinni voru tveir tómatar að labba yfir götu. Alltíeinu kraup annar tómaturinn niður á jörðina og laut höfði. Hinn spurði hann hvað hann væri að gera. Sá krjúpandi svaraði: - Votta látnum bræðrum okkar virðingu…
***
Einu sinni var gömul kona að labba yfir götu… Og svo…haha… og svo… KRASS!!! Hún er dauð.
***
Einu sinni voru tveir tómatar að labba yfir götu, og veistu hvað, þeir lifðu það af!
***
Hvað er líkt með fíl og jarðaber?
-Bæði er rautt, nema fíllinn!!!
***
Hvað er líkt með gröfu og fíl?
-Bæði byrja á G, því fíllinn heitir Gísli!!!