Ég syng ekki afmælissönginn…ég skal samt gera það hljóðlaust! *Munnar afmælissönginn*
Og íslenskukennarinn minn átti líka afmæli! Og við sungum(ekki ég) og það var falskasti og háværasti afmælissöngur nokkurn tímann sunginn! Og svo fékk hún köku og smartís frá einhverju fólki! Og við fengum smartís! Ég fékk tvo rauða!
Og bekkjabróðir minn rakaði á sig skalla efst á hausinn á sér og skildi eftir hár hringinn í kringum hausinn! Argentína tapaði og hann og vinur hans voru pirraðir og ákváðu að gera eitthvaðð! Hann leit útfyrir að vera sextugur! Ég held að ég hafi aldrei hlegið jafn mikið og fengið jafn mikinn kjánahroll og þegar hann tók húfuna af hausnum! Hann ætlaði að raka allt hárið af í dag!
Og nú er ég komin langt útfyrir efnið ‘Þú átt afmæli’ ;)