Ég var busuð í dag :D
Það var ekki gaman :D
Þegar ég kom heim fékk ég að skafa tómatsósu, æöndu af hveiti og vatni, hárgel, hárvax og eitthvað fleira skemmtilegt úr hárinu á mér. Og þurrka burt brúnan varalit framan úr mér =D
Svo var draugahús. Það var viðjóður, ég var farin að snökta þarna inni :| Það var einhver stelpa send inn með mér sem ég hafði aldrei hitt eða séð áður og við nánast leiddumst þarna í gegn. It was really that scary :/
Ooooog það fyrsta sem tók á móti mér þegar ég kom út úr því voru þrír svona “böðlar” (andstæðan við busa) sem sprautuðu helling af vatni á mann og svo þurfti ég og tveir aðrir að gera solldið sem mun ekki koma fram hér.
Allavega…Þetta var hræðilegt :D
Lazytown kveður í bili, bæjó :*
Bætt við 31. ágúst 2006 - 19:48
Þetta átti að vera “blöndu”. Skemmtilegur þessi edittakki eh?