þegar við mættum í skólann…
þá máttum við ekki labba inn. stóð svona á gangstæettinni:
*ör til vinstri, útá enda* “busar” og benti á endann á brúnni (sem er yfir læk, svolítið löng) og var frekar þröngt…
*ör til hægri, miiiklu meira pláss* “æðri verur” og þegar þau komu að inganginum þá stóð fyrir utan “velkomin heim” og hjarta… en það var bara fyrir æðri verurnar :P
við máttum alls ekki labba…. urðum að skríða… á bakinu…. afturábak…. alla leiðina….
svo komum við inn en máttum ekki standa upp
áttum að skríða á fjórum fótum að borði og þar sat stelpa á borðinu.
við stoppuðum við það og hún stimplaði “BUSI” á ennið á okkur og við skriðum undir borðið
og þá var tekinn varalitur eða eithvað og krotað á okku (ætla að senda inn mynd seinna :Æ) og svo gerðar svona svartar línur um augun (ég slapp við það >:) )
og svo fengum við flottann bol sem stóð aftaná “BUSI” og fyrir neðan “06” og var síma merkið framaná…
svo var búið að teipa á gólfið svona smá línur og busarnir máttu ekki fara útaf þeim eða…. það var svona eithvernvegin:
bara smá bil sem við máttum labba á…. rétt náðum að labba
svo var ég eithvað bara dúlla mér á efri hæðinni… EKKI á teipinu og einn gaur labbaði að mér “afhverju ertu ekki innfyrir línuna!? 20 ARMBEYGJUR!!!”
ég gerði 20 armbeygjur….
“ÁFRAM!”
gerði 10 í viðbót :/
svo sleppti hann mér… og ég sat þarna í smá tíma og andaði
svo bara 5 min seinna, ekki einusinni það, þá náði hann mér aftur :/ og það voru 20 armbeygjur í viðbót :( semsagt…. 50 armbeygjur
og svo mjög stuttu seinna náði hann mér AFTUR!
og ég sagði að ég hafði verið á línunni! því ég var það! :O
og hann sleppti mér :Æ
svo gerðist voða lítið meira, var bara krotað á suma og svona ^^
og svo kl 12, þegar við vorum í tíma þá komu fullt af fólki í svona hermanna fötum og öskruðu “ALLIR FRAM!!! ÚT!!! NÚNA!!!”
og við vorum öll rekin út :P
allir í skólanum, eða… busarnir
og okkur var hent inní íþróttahús…
þar sem við gerðum alskonar hluti sem ég nenni ekki að skrifa því þá verður þetta ALLT of langt :/
en ég svitnaði svo mikið að ég man ekki eftir því að hafa svitnað eins mikið og ég ældi næstum því nokkrumsinnum… en það var góð tónlist þarna ^^
og svo var sumt sem ég sleppti en þetta voru svona aðal atriðin :P
skil ef þú nennir ekki að lesa ^^
Bætt við 24. ágúst 2006 - 16:12 það rétt svo passaði ein manneskja í einu að labba á línunni :P