Ég var bara eitthvað að tjilla í fríhöfninni þegar ég sá bráðamóttöku :O

Þar var að fæðast oggulítið kríli, iPod Nano, en enginn vildi eiga hann :O (þess má geta að hann er afkvæmi Sigríðar og Gunthers :Æ). Svo að ég tók hann í mína umsjá. Hann er svartur, alveg eins og pabbi sinn, og er bara lítið kríli, 1 GB.

En ég hef lent í vandræðum. Ég veit ekki hvað ég á að nefna hann. Svo að ég var að vona að þið, kæru sorparar, gætuð hjálpað mér að velja nafn.

Þannig er þetta, ég tek 5 bestu nöfnin og set þau í pott, dreg svo út nafnið sem verður valið =)


Skilafrestur á nöfnum rennur út kl. 7. í kvöld!