Jæja núna leiðist mér gífurlega og því ætla ég að gera einn afar mjög svo tilgangslausan kork/þráð.

Í dag(eða einhverntímann) fékk pabbi minn sms frá vini(eða einhverjum) sínum. Í því stóð: Síminn minn er að verða batteríslaus. Hringdu í þetta númer þegar þú þarft að ná í mig *eitthvaðnúmer*

Og hann pabbi minn hringir í þetta númer, því hann þarf svo nauðsynlega að ná í þennan vin sinn. En þá kemur í ljós að þetta var numerið á hommabar! :O


Vá hvað ég er léleg í að segja frá, nú ættuð þið að vera voða mikið hlægjandi en mér gjörsamlega mistókst að gera þetta spennandi og innihaldsríkt með skemmtilegum, óvæntum endi.

Ég þarf að finna mér eitthvað að gera. . . .