Þar sem að Hugi er síður en svo spennadi um þessar mundir ætla ég að “sorpast”, eða hvað sem þið kallið þetta. Aðallega samt út af því að ég er næstum því grenjandi úr leiðindum, ég myndi meira að segja tala við Bretann ef hann væri online (oRiley veit hvað ég er að meina).
Ég nenni ekki að lesa eldra efni, og veit því ekki hvað ég á að skrifa hérna. Segir maður frá einhverju eða? Okei, höfum það þá bara þannig.
Ég get sagt ykkur frá því að ég fór í æðislegu leiksólavinnuna mína í morgun þar sem það voru æðisleg bjúgu í matinn.
Svo var ég á leiðinni úr æðislegu vinnunni og þá elti mig þessi æðislegi, urrandi hundur! :D Ég þurfti að hlaupa undan þessu æðislega dýri.
Ég hef ekki frá neinu meiru að segja og vona að þetta falli inn í þetta sorpsáhugamál. Bless! :D