Oh, það er svo ömurlegt að þurfa að vinna núna. Daginn eftir tónleikana og mér er illt í bakinu, hausinum mínum og bara heilanum og eyrunum.

Þetta hefur verið leiðinlegur vinnudagur. Er að vinna í búðinni hennar mömmu núna (til 6, oh neeeii) og hún er full af efnum og garni og eitthvað sem ég hef ekki vit á. Þessvegna er gott að min lille systir er hér því ég beini viðskiptavinum til hennar. Bhahaha

Það sem hefur farið úrskeiðis í dag:

*Ekki nóg skiptimynt
*Gaf vitlaust til baka
*Of mikið af fólki og ég varð hrædd
*Ein þýsk kona sem talaði þýsk-ensku og endurtók alltaf eitthvað jachrer og ég skildi ekki bofs:/
*Ég komst að því að LITLA systir mín er klárari í mannlegum og útlenskum samskiptum en ég:(
*Kassinn vildi ekki opnast og það var röð
*Stóra systir mín er hálfviti:S
*Oooog, verður mjög líklega eitthvað meira. . . .

Mér leiðist