nei, djöfullinn er kúl, ekki reikningur.
Morbid Angel og Slayer færu aldrei að syngja um reikning, hvernig best væri að finna miðpunkt línunnan (4,7) (8,5).
Semsagt. Djöfullinn = kúl, reikningur = bara fyrir nörda.
ef ég væri trúuð *lít niður í buxurnar* afsakið.. trúaður.. þá myndi ég líka halda það sama. Þeir eru tvíburar en Guð er ljóti tvíburinn sem fékk aldrei athygli og gerði bar a fallega hluti og teiknaði blóm og drakk vatn en Djöfullinn er svali tvíburinn með hár niður á gólf og skegg og gengur bara í leðri og hljómsveitabolum og hlustaði bara á Metal og drap geitur og skemmti sér þannig í frítímanum og var alltaf að tala um það hvað Guð væri mikill aumingi.
Svo þegar pabbi þeirra dó vorkenndi hann Guði svo mikið að Guð fékk að eiga himnaríkið og þá ætlaði hann að vera geðveikt vondur við Djöfulinn og setti hann til Helvítis með öllu svala dótinuu, fullt af plötum, blackmetall, leðurjakkar, mótorhjól og svalt fólk og partí allan sólarhringinn, á meðan Guð fær bara kanínur og vöfflur og þarf að hanga í messu allan daginn.