Bara næst…
Tja, þegar ég mætti með Atla og Kristínu þá sá ég ekki fram á að það yrði mikið úr þessari samkomu því enginn var mættur kl 10 mín yfir… svo mætti Brynjar, og eftir hálftíma 3 aðrir, svo Tinna og loks restin 3 :) Sum okkar fóru í tækin, nokkuð gaman fyrir utan það hvað ég hef fáránlega viðkvæman maga. Svo inní Smáralind að borða, 4 okkar á Subway og allir hinir á Burger King O.O Eftir það var ekkert að gera nema að ákveða hvert skildi halda, og þegar við vorum komin út þurfti ég að fara því tívolíið náði ætlunarverki sínu. En ég var veifuð 68 sinnum við hinn endan :) Það var gaman.