Það var fjör hjá mér í dag, byrjaði á því að slá sundlaugargarðin með einhverri rafmagnsslátturvél. Auðvitað þurfti hún að bila, svo að ég fór að raka gras, eða frekar liggja í grasinu með illA og félögum.
Svo seinna vorum við illA að setja í poka og baktala hugara þegar eitt stikki vitleysingur kemur og reynir að setja gras í pokan minn. En veggna lélegrar samhæfingar handa og augna fór meirihluti grasins á jörðina. Ég sagði honum að þetta gengi ekki og að það væri bezt ef hann myndi raka og láta okkur í friði.
Það fílaði hann ekki þannig að hann fór bara að vera með kjaft, lét hrífuna niður öfugt þrátt fyrir að vita að það mætti ekki, og fór bara að rífa sig.
Auðvitað reyndi ég að vera eins kurtesislegur og ég gat og bað hann um að snúa hrífunni, en hann neitaði. Ég sá ekki annað ráð en að hrinda honum og stíga ofan á hann, en einhverra hluta vegna varð hann bara pirraður og hljóp á eftir mér með hrífuna á lofti.
Hann var afvopnaður og við strákarnir lögðumst í grasið og spjölluðum um fantasíur okkar, sem flestar höfðu vitleysinginn upp í tré eða á hafsbotni. Svo þegar við sátumst upp var vinnu tími okkar búinn og við fórum heim.
Kveðja, Bloggsíðulausi Bloggarinn.