Það er nokkuð langt síðan ég hef sent inn þráð hér svo ég geri það núna!

Í honum mun t.d. koma fram sú æðislega staðreynd að ég er kominn með vinnu sem er ekki unglingavinnann! Ótrúlegt en satt.

Þannig er það nú að ég er kominn með vinnu uppi í Nóatúní í Hamraborg á kassa!
Þannig að ef þið eruð uppi í Nóatúni í Hamraborg nálægt kössunum og heyrið rödd segja “Góða kvöldið/daginn”.
Þá gæti það verið hún Hulda sem vinnur með mér.
En það gæti líka verið ég sem væri nokkuð svalt eyh?
Þannig að ef þið eruð að versla í Nóatúni í Hamraborg þá er alveg skylda að koma á kassann hjá síðhærða stráknum.
Gallinn er sá að mér finnst Nóatúns skyrtan sem ég þarf að vera í ekki nógu flott, allt of…………ja rauð.
Hef reyndar bara mætt einu sinni en það var hart og svo vinn ég á morgun.
Og! Þegar ég var að vinna í gær var hann Danni vinur minn svo æðislega góður að leyfa mér að fara út með lífræna afganginn, svo ég bar út einhvern bakka með blóði og kjöti og fitu og skemmtilegheitum og henti ofan í gám sem var fullur af rotnandi drasli.
Síðan hélt á á bakkanum meðan Danni sprautaði á hann með vatnsdrasli og þá blotnaði ég!
Helvítis gæsin hann Danni….
En já hér kemur smá message sem bara Nóatúns fólk skilur:
5007, 6100, 5008.
En já, nóg um Nóatún, ég vinn líka á Leiksskóla á vegum unglingavinnunnar!
Vinn á Heilsuleiksskólanum Urðarhóli, alveg indælt.
Fyrst var ég spurður nokkrum sinnum hvort ég væri stelpa út af síða hárinu en núna alltaf ef einhver spyr mig hvort að ég sé stelpa svarar annar krakki “Nei, hann er rokkari”
Það er sko harðkjarni.
Gunni úr Roadkill vinnur líka þar og við höfum nokkrum sinnum spilað á gítara fyrir krakkana =D Mjög gaman.
Fæ frían mat þar og á föstudögum kemur alltaf einhver af starfsfólkinu (ég og Gunni náttúrulega ekki) með eitthvað ljúft og það er étið!
Svo er…..já ég er ekki lengur með skrifefni við fyrstu tilhugsun því þetta bara rann úr mér.
Nema!
Kata sagði mér að gera ljóta hluti við leiksskólabörnin sem verða ekki hafðir eftir hér. Skammastu þín Kata!

P.S. Ekki kaupa í Nóatúni kassa sem eru með Supermann á, pirrandi að afgreiða þannig lagað því ég kann það ekki, það var gert fyrir mig með því að ýta á svona 30 takka og þetta hét bara 14% Matvara og ógilt strikamerki og vesen.