Það eru bara 4 dagar í að ég fari út til Danmerkur! Ég hlakka svo til!
Allavega, ég var að pæla … Hefur einhver farið til Kaupmannahafnar, í Tívolí og þannig? Ég hef nefnilega ekki verið þar, bara keyrt í gegn. Er ekki málið að kíkja á Tivoli, Rådhuspladsen og Stroget (danskt ö) *allt sagt með ýktum dönskum hreim* Ég fer nefnilega með flugi heim seinni partinn daginn eftir að hátíðin er búin svo ég verð að gera eitthvað almennilegt :P
Svo að lokum, er einhver annar að fara? Hefur einhver hérna farið áður? Ég er bara að fara í fyrsta skiptið :)