Já, nú er komið að því sem maður hafði óttast.
Ég, HerraFullkominn er að kveðja alla ykkur sorpara að eilífu.
Og ekki bara sorpara heldur bara alla hugara almennt.
Það hefur verið gaman að þekkja ykkur öll og allir áttu sína spretti og sín downs.
Það var gaman að hitta þá sem maður hitti og við hina hefur verið verið indælt bara að tala við í gegnum þennan vef eða MSN en núna er komið að því að leiðir okkar skiljist.
Viljið þið vita ástæðuna?
Hér er hún:
Mér er aftur orðið ískalt á litla putta vinstri handar!
Sum ykkar muna kannski eftir þessum korki mínum
http://www.hugi.is/sorp/threads.php?page=view&contentId=2925219#item2925451
þar sem ég lýsti með ykkur því hvað mér var ógurlega, óeðlilega kalt á litla putta vinstri handar og öllum ótta mínum sem fylgdi því.
Að lokum lagaðist þetta þó en fyrr hafði verið komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri alveg stórhættulegt og ég var bara heppinn að þetta lagaðist.
En núna er það komið aftur, þessi ískaldi litli putti vinstri handar.
Ég veit ekki hvað mun gerast hér eftir.
Mun ég missa litla fingur vinstri handar?
Mun ég missa litlu fingur beggja handa?
Mun ég missa fleiri putta?
Mun ég missa hendurnar?
Mun ég missa fæturnar?
Mun ég missa þriðja fótinn?
Mun ég missa alla útlimi?
Eða mun ég einfaldlega deyja?
Vonandi slepp ég við hræðileg örlög og vonandi lagast þetta bara fljótt án neinna meiðsla.
En ef ég skyldi ekki þrauka þetta.
Þá eruð þið frábær…….
En hey puttinn er eignlega orðin heitur aftur…töff