Ég gleymdi alveg í gær að segja ykkur frá því sem gerðist í stærðfræðitíma í gær.
Gulla[kennari] var veik svo Imba[náttúrufr. kennari] kenndi okkur og borðin í stofunni var frekar asnalega raðað nokkur upp við vegg og svoleiðis.
En síðan var ein lengja með 3 borðum í, 2 borð upp við glugga og hitt hliðin á borði við glugga.
Ég og Hawk Boy sátum við gluggan en Jóhann Óli sat á vinstri kantinum þannig að það var bara veggur fyrir framan hann.
Síðan vorum við eitthvað að fíflast og Hawk Boy henti út pennanum mínum[mig vantaði blýant/0.7 blý] út um gluggann.
Haukur bað síðan um að fara á klósettið en fór í rauninni út að sækja pennann minn.
En þegar Haukur kom til baka þá var Jóhann Óli búinn að henda út strokleðrinu hans Hauks.
En þá kom Ragga[svona varaskeifa kennarans] og eitthvað ég spurði hvort ég mætti fara að sækja strokleðrið hans Hauks og hún sagði nei og fór sjálf að sækja það.
Síðan seinna í tímanum þá var Jóhann Óli að hjálpa eitthverjum með eitthvað í stærðfræðinni og hann var ekkert að fylgjast með okkur Hauk svo við földum annað pennaveskið hans.
Og Jóhann sagði:“Hvar er pennaveskið mitt?”
Ég:“Go and get it”
Jóhann:“Gerðuð þið það?!”
Ég:“Jamm”
Og hann fór út að leita að því en síðan settum við það á borðið hans þegar hann kom aftur því að Ragga var búinn að fara eitthvað fram og héldum að hún hefði farið út og sótt Jóhann or some, þannig við slepptum því að henda því út þegar hann kom inn, það hefði samt verið fyndið.
En allaveganna spilar eitthver Sorpari America's Army???
http://www.americasarmy.com/downloads/
Ef það er eitthver hérna sem spilar America's Army þá spyr ég hvað heitirðu í leiknum???