Ég á páskaegg! Og ég vann það! Eða svona..
*flash back*
Í gær skrapp ég á mót.. Mér gekk svona lala.. (m.ö.o. mjög illa). En síðan átti að draga út.. Og þeir sem voru dregnir út voru spurðir: “Viltu egg eða bók?” Og auðvitað völdu allir egg (skákbók eða páskaegg?.. Heimskuleg spurning). Síðan sagði gaurinn í bláu peysunni: “Það eru enn nokkur páskaegg eftir; Tinna Kristín viltu bók eða bók?”
Þegar ég ætlaði að fara að segja: “Græna geimveru” sagði hann:“Nei, ég var bara að grínast, auðvitað máttu fá egg.”
Og svo rétti annar gaur mér páskaegg nr. 6! (Flestir fengu bara nr. 3..)
Argasta gargasta! Litla systir mín vill fá tölvuna. Pfft..