Ég gleymdi spilaranum mínum úti um jólin, grátum *byrjar að gráta en hættir strax* okey þá erum við búin að gráta.
Í dag fékk ég hann aftur YAY
en hann kom til landsins í þarseinustu viku en ég fór ekki í bæinn um seinustu helgi svo.
En núna man ég bara ekki nafnið á spilaranum, ég man hins vegar að eitthvað tengt símanum mínum hét Nemesis.
Núna er ég að hugsa hvað ég get kallað spilarann, ég kalla hann Sám frænda/Uncle Sam eða John Bull.

Ég er búinn að ákveða hvort það mun vera.
Það er, fæ ég trommur? *kall byrjar að tromma* það er Sámur frændi eða Uncle Sam, nema náttúrulega ef þú hefur eitthvað betra.


Ég er ekki þekktur fyrir að sofna á kvöldin í sófanum yfir sjónvarpinu, en nei það var ekkert í sjónvarpinu sem ég nennti að horfa á eftir 2300 eða eitthvað álíka svo ég dó í sófanum, en þetta er búið að vera frekar skrýtinn dagur hjá mér því ég sofna heldur ekki í bílum, en nei rétt fyrir utan Mosó datt ég út.

Hvað er þetta eiginlega með mig í dag, síðan var ég næstum sofnaður í tíma og vesen.

Vitiði hvað ég er að pæla að fara sofa aðeins meira í dag.

Góða nótt