Hvað haldið þið að ég hafi gert í dag? Nei, ég fór ekki á fyllerí með kettinum mínum. Ég beið í biðröð í 3 klst!

Hvað er verið að bulla um að Íslendingar geti ekki staðið í biðröðum? Ég er nú al-íslensk (fyrir utan þennan eina langa-langa-langa-afa).

En biðin var þess virði. Ég fékk miða á samfés. Reyndar fékk félaxmiðstöðin í Borgarnesi (Óðal) 83 miða og 74 af þeim voru seldir (Stjórnin gekk fyrir með að fá miða, þau þurftu ekki að standa í biðröð).

Samkvæmt mínum útreikningum fara 75% unglinga úr Óðali á Samfés. Víhí!

*syng* Mí góing á Samfés *söngur hættir* JabbadabbadúÚúú..!