Mig langar í bíl, ég þarf að fá bíl, meina, ég bý hérna á hjara veraldar, kemst varla í bæinn án bíls!
Heimskulega regla að maður fær ekki bílpróf fyrr en á 17 ára afmælinu, það ætti að vera eitthvað sér fyrir desemberbörn -_-"
Mig langar sérstaklega mikið í einn bíl sem maður systur minnar á, hann er bara bilaður, og ekki á númerum, en sjúklega flottur!¨Mig myndi langa að eignast hann og gera upp, og keyra. En nei, ég á ekki pening, því að ég finn hvergi vinnu við mitt hæfi sem gefur góð laun, auk þess að ég fæ ekki bílpróf strax.
Ég hata bið! Get þó huggað mig við að eiga alveg ágætt safn af leikfangabílum :P