Erm, ég vil ekki hljóma einsog perv eða eitthvað álíka…
… En ég hef sterklega á tilfinningunni um að stúlkur séu ekki að fara að mæta á næstu samkomu. Þær foxyme, supernanny og Gelgjan eru þær einu sem hafa verið duglegar að mæta og núna sér maður fram á það að allavega tvær þeirra komist ekki…
Og kannski kæmi bara svona ein stelpa og það væri geðveikt weird.
Fullt af strákum… Og svo ein stelpa.
Stúlkur, ekki vera feimnar, foxyme, supernanny og Gelgjan geta vottað fyrir því að þetta er alveg okay!
… Vona ég, þið getið vottað fyrir því er það ekki?
Segjum það bara.
Allavega.
Þessi þráður á ekki að hljóma, einsog ég sagði, perv-lega, en þetta er bara svo breytt frá því þegar það leit út fyrir það að á fyrstu samkomuna myndu mæta 4 strákar og 8 stelpur. (Sem síðan gerðist ekki… EN það leit út fyrir það).
Endilega mætið bara og …. Eh… Farið svo ef þið nennið ekki að vera?
Og þó þið séuð feimin, og núna tala ég líka til stráka… Mætið samt, við þekkjum ykkur ekkert, þið getið fylgst með okkur í smástund og svo tekið ákvörðun hvort við séum þess virði að eyða tíma með.
Komið! Fjölmennum!