Jaaaaá, en þyrfti þá ekki að fordrekka drykki?
Og ef þú vilt það þá verður eiginega að forsitja sæti, en ef maður vill forsitja sætin sín er það alger nauðsyn að forganga skó.
En ef að það gerist myndi næsti forseti landsins að öllum líkindum verða önd vegna þess að allir vita að endur fortyggja mat og hafa alltaf gert og eru þess vegna eðlilega bestar að fortyggja mat, forsitja sæti og fordrekka drykki á landinu.
Ef að endur yrðu þá síðan stærri og stærri atvinnuhópur á landinu, og sífellt stækkandi, myndu endur fjölga sér margfalt meira vegna bættra kjöra og hægt og hægt myndu endur verða meirihluti hér á landi og kjósa næsta forseta önd.
ÞÁ hinsvegar, þegar endurnar hafa heilt land undir sinni stjórn og þá væntanlega líka heila þjóð undir sinni stjórn, myndi ekki líða að löngu þar til Færeyjar yrðu einnig undir stjórn anda vegna þess að endur frá Íslandi myndu sumar hverjar fara til Færeyja til að koma á fót stjórnflokk og þær myndu síðan sjá um það sjálfar að fjölga sér o.s.frv. þar til Færeyjar yrðu undir stjórn anda einnig.
Löndin tvö, Færeyjar og Ísland, myndu síðan gera bandalag vegna þess að stór hluti stjórnarinnar á Færeyjum væri frá Íslandi og ekki liði að löngu þar til Grænland bættist í hópinn með sömu aðferð.
Nú, þá eru endurnar hér á Íslandi komnar með fína fína stuðningsmenn og hvetja Færeysku og Grænlensku endurnar til að losa sig undan stjórn Danakonungs, sem mun væntanlega ganga upp.
Þá munu þjóðirnar 3 síðan vinna saman að því að koma upp herafla og fjölga sér að sjálfsögðu.
Meiri upplýsingar get ég ekki gefið upp.
Þetta gerist semsagt ef að þú ræður endur í vinnu.
Chuck Norris is the reason why Waldo is hiding.