ekki málið félagi. Það eina sem þú þarft er:
5 Svört kerti
Eldspýtur (ekki kveikjari, það er svo lélegur eldur úr þeim)
Orkablóð
Ostaskeri
Trommukjuði (fyrir vinstri höndina)
Bók
Stígvél
Glas
Glas
Glas
Pottur
Klukka og
Hundur.
Þú teiknar fimmhyrnda stjörnu (Pentagram) úr Orkablóðinu, setur eitt kerti við hvert horn pentagramsins. Þú kveikir á kertunum, safnar ofangreindum hlutum í miðjuna á pentagraminu, bíður í 3 mínútur, skilar öllum hlutunum aftur þar sem þú tókst þá, skúrar blóðið af gólfinu og slekkur á kertunum og hendir þeim í ruslið.
Svo finnuru þér gott loft til að láta hverfa. Það er oftast að finna með því að rétta út hægri höndina skáhallt upp í lotfið, grípur svo loft, heldur því fyrir framan bringuna þína, sveiflar vinstri höndinni þinni í kringum óvinstri höndina sem heldur á loftinu, og þá bara … PÚFFF !! Opnar höndina og þá er bara allt horfið !