Þeir voru komnir með grímu á sviðinu sem spýtti blóði ´77 held ég sem fékk nafnið Eddie the 'ead, (var fiskidæla sem dældi blóðinu út um munninn á honum) en gallinn við grímuna var að það lak alltaf blóð á trommarann (Doug Samson ef ég man rétt) og liturinn festist í hárinu á honum (ljóshærður). Svo man ég ekki hvað gerðist, en allavega fengu þeir Derek Riggs til að búa til karakter fyrir bandið, sem var Eddie, og svo fór rótarinn þeirra að dressa sig upp sem Eddie á tónleikum og eitthvað þannig. man ekki alveg nákvæmlega hvernig þetta var, en það var eitthvað í áttina