YEAH, það er kominn snjór, víííííííííííííííí

vá hvað þessir undanförnu dagar eru búnir að vera skrýtnir, t.d. fékk ég áðan svala sem var með ananas bragði en átti að vera með jarðaberja bragði :|

Bróðir minn og ég voru svaka miklir vinir í gær og fórum í pílu. Eftir að ég var búinn að rústa honum fór hann eitthvað að hoppa ofan á mig og læti. Þá tók ég eftir einu. Bróðir minn var sveittur. Ojj. Hann svitnaði á því að vera í pílu. Ég fór eitthvað að gera grín af honum og svona eins og venjulega og hann varð reiður og svona. Þá fór hann eitthvað að reyna að lemja mig en ég var bara í hláturskasti. Svo tók hann tilhlaup og hoppaði á mig (ég lá uppí rúmi) og hann skall með hausinn í eitthvað hart á koddanum. Ég náttúrulega gat ekki hreyft mig úr hlátri og hann hélt áfram að reyna að lemja mig, en á árangurs. =D gaman af því. EN YAY, ÞAÐ ER KOMINN SNJÓR, ég er að pæla í því að fara út í snjókast við sjálfan mig =D Tata og bæbæ..

Alli-einn sem er ánægður með snjó