Sko, fyrst kom ég á þessa síðu þegar ég var 10 eða 11 ára, hefur örugglega verið linkur á leit.is eða e-ð. Ég ætlaði þá að búa til notanda, en í þarna skráningarforminu þurfti að gefa upp netfang, og kjáninn ég hélt að ef ég myndi skrá það þarna myndi það eyðast og hugameillinn koma í staðinn, silly me…
Ég kom svo hingað inn rétt fyrir skólabyrjun 2003, og bjó til notanda ^^ Ég man m.a.s. þegar ég var að gera kasmír síðuna mína um leið og ég fékk notandann, var að flýta mér að klára að setja inn skemmtilegt efni á hana fyrir skólabyrjun…
Ég var ekki virkur á huga, kom samt næstum daglega inn á en skrifaði lítið, og eftir að ég flutti í Mosó haustið 2004 hætti ég alveg að skrifa inn, þrátt fyrir að koma hingað inn á hverjum degi! Svo í maí á þessu ári sendi ég inn mitt fyrsta innlegg í langan tíma, grein á /bilar. Sama dag kom mitt fyrsta álit á sorpinu, og síðan varð ekki aftur snúið…
Vá, langt :/