ansans, mér er illt í hendnni
þannig eru mál með vexti að ég var í tölvunni að horfa á kolólöglega útgáfu af Lord of War. Þá allt í einu hringir pabbi og seigir að ég eigi að drullast úr tölvunni svo litla prinsesan komist í bubble trubble. Ég varð pínu ponsu súper dúper pirraður, svo ég fór inn í herbergi og setti Yellow snow á.
Svo fór ég að leika mér með loft bissuna mína og skaut meðal annars Lenín og stopp skiltið mitt. Svo fann ég olíu brúsa og kveikjra sem ég hafði síðast notað á Alice Cooper tónleikum. Ég lagði saman 2 og 2 og fékk 65, svo ég fór út með þessi verkfæri mín og fann mér einhvað til að brenna. Eftir margra sekútna rölt var ég komin í útjaður bæarins, þar sem ég settist niður og byrjaði að sprauta olíu á allt. Svo tók ég kveikjaran upp og kveikti….
…og ekkert gerðist, ég reindi aftur, ekkert gerðist. Það var þá sem ég tók eftir einhverju drasli sem hékk einu trjánna. Ég vætti það í olíu og tók framm kveikjarann og áður en ég vissi var allt í ljósum logum.
En svo fann ég ís box sem ég vætti í olíu, bar upp að eldinum, og boxið fuðraði upp og hendin líka.
Og nú er mér illt í hendinni.